DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki |
1001.00 kr /25g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki 1001.00 kr /25g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
= slétt lykkja | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman |
|
= prjónstefna |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Seaside Dream |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Peysa prjónuð ofan frá og niður með laskalínu, ¾ ermum, gatamynstri og bylgjukanti úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 175-28 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 8,75. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir ca 8. og 9. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.1 endar mismunandi eftir stærð. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Byrjið 1 lykkju á undan A.1 og prjónið þannig: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerki, prjónið A.1 og aukið út um 2 lykkjur eins og sýnt er í mynsturteikningu, prjónamerki, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættir prjónaðir brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 70-74-74-82-86-98 lykkjur á stutta hringprjóna 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 8-8-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 78-82-86-94-102-114 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 5 og prjónið næstu umferð þannig: 14-15-16-18-20-23 sléttar lykkjur, setjið 1 prjónamerki, 11 lykkjur slétt (= hægri ermi), setjið 1 prjónamerki, 28-30-32-36-40-46 sléttar lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, 11 lykkjur slétt (= vinstri ermi), setjið 1 prjónamerki, 14-15-16-18-20-23 lykkjur slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan sléttprjón og A.1 á milli prjónamerkja á hvorri ermi. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur færri – ATH: Útaukning á ermum er teiknuð inn í A.1). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 20-22-24-26-29-30 sinnum. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka í þinni stærð eru útaukningu fyrir laskalínu lokið og það eru 238-258-278-302-334-354 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 22-24-26-28-30-31 cm frá öxl og niður. Næsta umferð er prjónuð þannig: 34-37-40-44-49-53 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 51-55-59-63-69-71 lykkjur á þráð (= hæri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóni (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja = í hlið á fram- og bakstykki), prjónið næstu 68-74-80-88-98-106 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 51-55-59-63-69-71 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóni (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja = í hlið á fram- og bakstykki) og prjónið þær 34-37-40-44-49-53 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvort fyrir sig. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-160-176-192-212-232 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið svona með 4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 136-148-164-180-200-220 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 148-160-176-192-212-232 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4 þegar stykkið mælist 33-33-33-33-33-34 cm frá skiptingu. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjóna 5 og fellið af – Það er mikilvægt að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. Setjið 51-55-59-63-69-71 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-10 lykkjunum undir ermi = 57-61-67-71-77-81 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu – umferðin byrjar hér. Prjónið síðan þannig: 0-2-1-3 2-0 lykkjur sléttprjón, A.2A (= 4 lykkjur – byrjið á A.2 þar sem A.1 endaði í þinni stærð), A.2B yfir næstu 48-48-56-56-64-72 lykkjur (= 6-6-7-7-8-9 mynstureiningar 8 l), A.2C (= 5 lykkjur) og 0-2-1-3-2-0 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fækkið svona alls 8-10-12-13-15-17 sinnum í S: Í 4. hverri umferð, í M: Í 3. hverri umferð, í L + XL: Í annarri hverri umferð, í XXL + XXXL: Í hverri umferð = 41-41-43-45-47-47 lykkjur – ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni, passið uppá að það passi með fjölda úrtöku og útaukningu í mynstri. Þegar stykkið mælist 18-16-15-14-12-11 cm frá skiptingu undir ermi (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) er skipt yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið aftur yfir á sokkaprjóna 5. Takið frá 1 þráð BabyAlpaca Silk og prjónið 1 umferð slétt með 2 þráðum Kid-Silk. Hver lykkja samanstendur nú af 2 lykkjum þar sem prjónað er með 2 þráðum = 82-82-86-90-94-94 lykkjur. Takið frá 1 þráð Kid-Silk og prjónið síðan með 1 þræði Kid-Silk þannig: * Prjónið í fyrstu af 2 fyrstu/næstu lykkjum slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið aðra af 2 fyrstu/næstu lykkjum slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 123-123-129-135-141-141 lykkjur á prjóni. Prjónið 5 umferðir slétt. Fellið síðan af þannig: * Fellið af 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Setjið lykkjur af þræði í hinni hlið á stykki á stutta hringprjóna 5 og prjónið á sama hátt og fyrri ermi. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (14)
Fabienne wrote:
Bonjour, j'aimerais faire ce modèle mais sans kid silk est-ce que cela change beaucoup les explications (dimensions, nb de mailles, etc). Merci d'avance
29.04.2022 - 18:28DROPS Design answered:
Bonjour Fabienne, vous pouvez ne pas utiliser Kid-Silk mais il vous faudra alors utiliser 1 autre fil du groupe A pour conserver la même tension de 17 m x 22 rangs jersey - utilisez notre convertisseur pour voir les différentes possibilités; ou bien il vous faudrait tout recalculer le modèle pour l'adapter avec la nouvelle tension. Bon tricot!
02.05.2022 - 07:52Loredana wrote:
Buongiorno, ho disfatto la manica perché nel ricominciarla seguendo il diagramma A2 non combacia il motivo. Sulle 6 maglie che riprendo da sotto la manica inizio con A2a oppure A2a inizia su A1? Inoltre cosa si intende per mettere un segnapunti al centro sotto la manica? Lo metto fra le 6 maglie (quindi 3 maglie, segnapunti, 3 maglie) oppure prima o dopo le 6 maglie? Poi devo diminunire 8 maglie o 16? Secondo me c’è un errore, sul testo. Diminuz. e gettati come si gestiscono?
14.02.2022 - 09:59DROPS Design answered:
Buonasera Loredana, il giro inizia al centro sotto la manica, al centro delle 6 maglie avviate, quindi 3 maglie, segnapunti e altre 3 maglie. Per le diminuzioni, ad esempio per la taglia S deve diminuire 16 maglie. Buon lavoro!
14.02.2022 - 19:32Liselott Olsson wrote:
Jag förstår inte riktigt hur jag ska sticka ärmen. Man ska lägga alla maskor och plocka upp 8 nya maskor, varvet börjar mitt i dessa. Men vilket varv ska börja där. Får det inte att stämma med tidigare stickat mönster. Mönstret är 77 m första varvet och då har man ju stickat förbi där varvet ska börja.
19.11.2021 - 22:15DROPS Design answered:
Hei Liselott. Hvilken str strikker du? Når du har strikket opp de maskene under ermet og satt 1 merketråd midt under ermet, klipp tråden og start neste omgang ved merketråden/midt under ermet. Videre strikkes det x-antall masker glattstrikk, A.2A (du starter med A.2 der A.1 sluttet i den størrelsen du strikker), A.2B over de neste x-antall maskene, A.2C (= 5 masker) og x-antall masker glattstrikk, fortsett mønstret slik. mvh DROPS Design
23.11.2021 - 09:38Susanne Mathiasen wrote:
Hej, Jeg kan ikke finde mål på de enkelte størrelser, hvilket jo er en forudsætning for valg af størrelse. Kan I hjælpe med det?
17.03.2021 - 16:47DROPS Design answered:
Hej Susanne, målene på de enkelte størrelser finder du i måleskitsen nederst i opskriften. God fornøjelse!
18.03.2021 - 10:24Maria wrote:
Elimino la domanda di prima. sbagliavo i conti. grazie
29.03.2019 - 09:50Maria wrote:
Buongiorno. sono arrivata a lavorare il corpo al punto della diminuzione-1, non mi trovo. Ho 212 maglie devo diminuire 2 maglie ogni 4 cm x 3 volte. non arrivo a 200 maglie come da istruzioni. Dove sbaglio? Grazie
29.03.2019 - 09:39Carina wrote:
Is dit patroon beschikbaar voor gewone naalden ipv rondbreinaalden.
07.01.2019 - 21:17Margherita wrote:
Buongiorno, lo scollo a legaccio rende la scollatura poco elastica e scomoda da infilare. Per ottenere maggiore elasticità e morbidezza, quali alternative posso usare? L’avvio tubolare può andare bene anche in tecnica top down oppure devo aumentare il numero dei punti? Grazie!
18.12.2018 - 19:46DROPS Design answered:
Buongiorno Margherita. Può lavorare un bordo a coste 1 m dir (o dir ritorto) / 1 m rov. Può avviare le maglie con il metodo che preferisce. Buon lavoro!
19.12.2018 - 08:43Sabina wrote:
Thank you for your answer , very helpful.I have another question- as I'm knitting in size S what is the first row out of the 12 in the A 2 pattern I should start to continue sleeve with in A2 pattern?
02.03.2018 - 20:18DROPS Design answered:
Dear Sabina, if you stopped the pattern, where the diagram says, for each size, you can start pattern A.2 at the first row. Otherwise knit the row which continues the pattern where you laft it off when separating the stitches. Happy Knitting!
04.03.2018 - 18:28Sabina Dyli wrote:
Hi . For the sleeves, can you explain whether the last five rows need to be knitted in knit stitch or as per pattern *knit yarn over knit *? Thanks
28.02.2018 - 22:00DROPS Design answered:
Dear Mrs Dyli, work first 5 rounds in stockinette st (= K all rounds) then bind off with yarn overs: *bind off 1 st, make 1 YO, bind off YO* - see video below - repeat from *-*. Happy knitting!
01.03.2018 - 08:53