DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Vintage Charmer

Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino eða DROPS ♥ You #7 með smá kaðlakanti, gatamynstri og laskalínu. Stærð XS - XXXL.

DROPS 169-10
DROPS Design: Mynstur nr bm-025
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
350-350-400-450-450-500-550 g nr 44, púður
Eða notið:
DROPS ♥ You #7 frá Garnstudio
350-350-400-450-450-500-550 g nr 08, vanilla

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 2,5 – fyrir stroff og kant.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kant með köðlum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni svo að þær gangi jafnt upp í mynstri.

LASKALÍNA:
Laskalína er gerð hvoru megin við A.4 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG:
Byrjið 2 l á undan A.4, prjónið 2 l slétt saman, A.4 (= 6 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG:
Byrjið 2 l á undan A.4, prjónið 2 l snúnar brugðið saman, A.4 (= 6 l), 2 l br saman (= 2 l færri).

ÚRTAKA (á við um kant í hálsmáli):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka lykkjum í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 114 l) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10 l) = 11,4. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis ca 10. og 11. hver l og 11. og 12. hver l saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 322-350-378-448-476-546-574 l á hringprjóna nr 2,5 með Baby Merino eða DROPS ♥ You #7. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff = 2 l sl, 5 l br. Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fækkið um 1 l í hverri brugðinni mynstureiningu með því að prjóna 2 fyrstu l í hverri brugðnu mynstureiningu brugðið saman. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, en nú eru prjónaðar 2 síðustu l í hverri brugðinni mynstureiningu saman = 230-250-270-320-340-390-410 l á prjóni. Prjónið nú mynstur hringinn eftir mynstri A.1 (= 23-25-27-32-34-39-41 mynstureiningar 10 l). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 184-200-216-256-272-312-328 l á prjóni og stykkið mælist ca 7-7-7-7-8-8-8 cm. Prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 8-6-4-8-6-10-8 l jafnt yfir = 176-194-212-248-266-302-320 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið mynstur hringinn eftir mynstri A.2. Eftir A.2 er sett 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 88-97-106-124-133-151-160 l. Prjónið síðan þannig: * Prjónið A.3A (= 6 l), endurtakið A.3B yfir næstu 72-81-90-108-117-135-144 l (= 8-9-10-12-13-15-16 mynstureiningar 9 l), prjónið A.3C (= 10 l), prjónamerki *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 5-5-6-8-10-10-10 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3-3 sinnum = 192-210-228-260-278-314-332 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga upp í mynstri. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38-39 cm prjónið næstu umf þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5-5 l fyrir handveg, prjónið 90-99-106-122-129-147-156 l (= bakstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10-10 l fyrir handveg, prjónið 90-99-106-122-129-147-156 l (= framstykki) og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5-5 l fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 52-52-61-61-61-70-70 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Baby Merino eða DROPS ♥ You #7. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir mynstri A.2 – ATH: Í umf 7 í A.2 er síðasta l í umf prjónuð slétt (á við um stærð L + XL + XXL). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið A.3A (= 6 l), prjónið A.3B yfir næstu 36-36-45-45-45-54-54 l (= 4-4-5-5-5-6-6 mynstureiningar 9 l) og endið á A.3C (= 10 l). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 5-6-6-7-5-9-9 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 3.-2½.-3.-2½.-2½.-2½.-2. cm millibili alls 14-16-13-15-16-14-17 sinnum = 80-84-87-91-93-98-104 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga aftur jafnt upp í mynstri. Prjónið þar til stykkið mælist ca 47-47-46-46-45-45-45 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) – passið uppá að prjónað sé jafn langt í mynstureiningu A.3 og á fram- og bakstykki áður en fellt er af fyrir handveg. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5-5 l, prjónið 74-78-79-83-83-88-94 l og fellið af næstu 3-3-4-4-5-5-5 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjóna nr 3 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 328-354-370-410-424-470-500 l. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram með mynstur eins og áður og prjónið að auki A.4 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (prjónamerki er staðsett mitt í A.4). JAFNFRAMT í fyrstu umf byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í annarri hverri umf alls 24-25-28-29-32-34-34 sinnum og síðan í hverri umf alls 4-5-2-3-0-0-3 sinnum – ATH: Þær l sem ekki ganga upp í A.3 þegar úrtaka er gerð eru prjónaðar í sléttprjóni.
HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-50-51-53-54-56 cm setjið miðju 12-17-24-28-35-43-46 l á þráð fyrir hálsmáli og stykkið er prjónað til loka fram og til baka (í sumum stærðum er nú laskaúrtaka bæði frá réttu og frá röngu). Haldið áfram með mynstur og laskalínu eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá hálsi þannig: Fellið af 3 l 0-0-0-1-1-2-2 sinnum, 2 l 2 sinnum og 1 l 3-3-3-4-4-4-4 sinnum.
Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru 78-83-92-104-111-127-130 l eftir á prjóni.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 104-114-130-154-168-198-204 l (meðtaldar l af þræði að framan) á stutta hringprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf br. Prjónið 1 umf sl þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 102-104-120-122-132-136-140 l (þ.e.a.s. fækkið um ca 2-10-10-32-36-62-64 l) – LESIÐ ÚRTAKA. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan of fellið síðan laust af með sl.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.05.2016
ERMI: ... Þegar stykkið mælist 5-6-6-7-5-9-9 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 3.-2½.-3.-2½.-2½.-2½.-2. cm millibili alls 14-16-13-15-16-14-17 sinnum = 80-84-87-91-93-98-104 l – ATH: Útauknu l eru prjónaðar með sléttprjóni þar til þær ganga aftur jafnt upp í mynstri. Prjónið þar til stykkið mælist ca 47-47-46-46-45-45-45 cm

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = setjið 2 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 2 l sl af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 1 l br af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 2 l sl, 2 l sl af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (86)

country flag Petra wrote:

Ich meine, wo ist bei der Passe der Rundenbeginn?

13.05.2024 - 09:34

DROPS Design answered:

Liebe Petra, Passe können Sie beim Übergang zwischen Vorderteil/Ärmel oder Rückenteil/Ärmel, dh 3 Maschen davor so kommt A.4 genauso am Übergang (3 Maschen, Markierungsfaden, 3 Maschen). Viel Spaß beim Stricken!

13.05.2024 - 12:29

country flag Petra wrote:

Hallo, wo setze am Beginn der Passe den Faden an? Viele Grüße Petra

12.05.2024 - 20:22

DROPS Design answered:

Liebe Petra, die Markierungsfäden setzen Sie am Anfang der Passe zwischen jedem Teil, dh beim Übergang zwischen Rückenteil und Ärmel, Ärmel und Vorderteil, Vorderteil und Ärmel und Ärmel und Rückenteil. Viel Spaß beim Stricken!

13.05.2024 - 08:11

country flag Petra wrote:

Hallo, werden die Maschen bis auf die stillgelegten Halsausschnittmaschen am Ende der Passe abgekettet?

24.04.2024 - 19:39

DROPS Design answered:

Liebe Petra, die mittleren Maschen für den vorderen Halsausschnitt werden stillgelegt, dann stricken Sie in Hin- und Rückreihen weiter, gleichzeitig nehmen Sie für den Raglan wie zuvor ab und ketten Sie für den Halsausschnitt am Anfang jeder Reihe (Hin- sowie Rückreihe) ab. Wenn alle Abnahmen fertig sind, wird man Maschen für den Hals herum Halsausschnitt (inkl. stillgelegten Maschen) aufgenommen. Viel Spaß beim Stricken!

25.04.2024 - 07:58

country flag Barbara wrote:

Nach dem Ende der Halsblende sind noch 130 M. Übrig Dann sollen 204 M. aufgenommen werden ? Wie das?

29.02.2024 - 23:05

DROPS Design answered:

Liebe Barbara, fassen Sie auch Maschen beim Halsausschnitt für Vorderteil auf, dann wird es aber bis 140 Maschen für die Halsblende abgenommen. Viel Spaß beim Stricken!

01.03.2024 - 08:19

country flag Pauline wrote:

Bonjour. Je suis perdue. Arrivée au diagramme A3, dès le début je suis à 12cm et donc j'augmente. Mais comme j'ai une augmentation, je le commence quand le diagramme A.3A ? Merci beaucoup

15.01.2024 - 07:55

DROPS Design answered:

Bonjour Pauline, tricotez les diagrammes A.3 comme avant, tricotez les nouvelles mailles augmentées d'abord en jersey, puis, quand vous en aurez suffisamment, vous pourrez les tricoter au point fantaisie. Notez que sur les côtés, le motif ne tombe pas juste, mais continuez à bien aligner les A.3 du dos et du devant pour qu'ils continuent comme avant. Ajouter des marqueurs entre les diagrammes peut aider à mieux se repérer. Bon tricot!

15.01.2024 - 10:14

country flag Aj Dekker wrote:

Ik zoek patroon met gaatjes Anjou

13.01.2024 - 16:42

country flag Kathrin Günther wrote:

Hallo zusammen,, was bedeutet in dem Modell im Diagramm A. 2. Die Reihe 7 habe dazu leider keine Zeichenerklärung was muss ich da wie stricken?? Weiter im Diagramm A. 3 A, A. 3B, A. 3C Was muß ich da stricken bei dem dargestellten Muster in den Reihen 5 und 7 sowie in den Reihen 15 und 17 auch hierfür habe ich keine Zeichenerklärung. Ich danke Ihnen im voraus. Mit freundlichen Grüßen Kathrin Günther

08.08.2023 - 22:38

DROPS Design answered:

Liebe Frau Günther, bei der 7. Reihe in A.2 stricken Sie:*2 M rechts zs (= 4. Symbol), 1 Umschlag (3. Symbol)*, und wiederholen Sie von *-*. Bei A.3 beginnt das Lochmuster mit A.3A (= 6 M), dann wiederholen Sie die 9 Maschen A.3B und enden Sie das Lochmuster mit den 10 Maschen A.3C. Siehe die Symbolforklarungen zwischen der schriftlichen Anleitung und die ersten Diagramme. Viel Spaß beim stricken!

09.08.2023 - 08:18

country flag Carol McMillan wrote:

2 questions 1 - I'm marking size XXL and just dec'd to 302 sts. I started the next row (chartA.2 8 sts) this doesn't divide evenly into 302? 2 - When piece measures 12 cm/4¾'', inc 1 st on each side of marker in each side . I just want to know where this actually occurs. Is it on the 1st row of the A3 charts?

18.12.2022 - 02:20

DROPS Design answered:

Dear Carol, chart A.2 is actually a 2-stitch pattern, which is repeated 4 times so that it can be seen more easily than a 2-stitch chart. Since you have 302 stitches, you will be able to fit complete repeats of the 2-stitch chart. For the increases, you need to increase when the piece measures 12 cm, it doesn't depend on which row of the chart you are working (since, with different gauges, people may be working different rows when they reach this measurement). So the row of the chart doesn't matter, only the measurement of the piece. Happy knitting!

18.12.2022 - 23:28

country flag Schilders wrote:

Wat is goede en verkeerde kant bij raglan, waar is de goede en war is de verkeerde kant

07.12.2022 - 20:05

DROPS Design answered:

Dag Schilders,

De goede kant zit aan de buitenkant als je het kledingstuk draagt en de verkeerde kant zit tegen de huid als je het kledingstuk draagt. Dit geldt ook voor de raglan.

07.12.2022 - 20:30

country flag Schilders wrote:

Wat is goede en verkeerde kant bij raglan, waar is de goede en war is de verkeerde kant

07.12.2022 - 20:01